Allar okkar vörur eru handgerðar úr gæða leðri og við ábyrgjumst gæði handverksins. Bendum við sérstaklega á að þar sem að leðrið er náttúrulegt efni getur verið litamunur á vörunum, einnig bendum við á að það getur verið litamunur á myndum og vörunni sjálfri.
Merkispjöld úr leðri og roði. Mikið úrval lita í verslun. Hægt er að fá merkimiðana í ýmsum litum og með ýmsum áletrunum, t.d. áletrun eiganda, fyrirtækja og til gjafa. ...
Dásamlega fallegir pokar, gerðir úr leðri og einnig blandað saman leður og gróft efni, breið bönd. Hægt að taka á bakið eða hengja yfir öxlina. Töff hönnun,rábærir í ræktina. ...
Handsaumaðar leðurtöskur sem slá í gegn. Óbreytt form er á töskunni síðan c.a. 1937 en þá var þetta vinsæl skólataska fyrir börn og unglinga. Hægt að gera í ýmsum litum og ...
Handsaumuð leðurtaska úr mjúku leðri. Óbreytt form á töskunni síðan 1950 en hentar fyrir fartölvur upp að 17" og kemur með axlaról.
Allar okkar vörur eru handunnar á verkstæðinu okkar. Sumar hafa ekki breyst svo áratugum skiptir á meðan aðrar hafa þróast með tímanum eða orðið til á síðustu árum. Við erum fagfólk sem leggjum metnað í að skila af okkur góðum vörum.
Leðurverkstæðið Reykjavík er með verslun í Síðumúla 33, þar getur þú komið og skoðað ýtarlega vöruúrvalið okkar. Ef þú hefur ekki tök á að koma til okkar þá getum við sent þér vöruna í póstkröfu eða á annan hátt sem hentar þér.
Leðurverkstæðið Reykjavík ehf.
Síðumúla 33, 108 Reykjavík
Sími: 551 6659 & 899 0983
Netfang: lvr@lvr.is
Kt. 6703141380 Vsk. 116554